FRÉTTIR & TILKYNNINGAR

Ljósin tendruð á jólatré Glerártorgs

24. nóvember 2026

Góð jól á Glerártorgi

Komdu og upplifðu góða jólastemningu þegar ljósin verða tendruð á jólatré Glerártorgs laugardaginn 28. nóvember kl. 14:00. 


Það verður jólagleði fyrir alla fjölskylduna þegar Skoppa og Skrítla, barnakórar Akureyrarkirkju, Maddamma úr Skilaboðaskjóðunni, Hans og Gréta, Jóla-Lóla, Krýla og jólasveinarnir mæta á svæðið og skemmta.