FRÉTTIR & TILKYNNINGAR

112 dagurinn á Glerártorgi

13. febrúar 2026

Sunnudaginn 15. febrúar næst komandi gefst öllum tækifæri til að kynna sér störf og skoða búnað viðbragðsaðila á Akureyri og nágrennis á Glerártorgi milli kl. 12:00 og 15:00

 Dagskráin er: 

  • Kl. 12:00 Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir á bílastæðinu fyrir framan Nettó og verður með gest um borð.
  • Kl. 12:00 Björnis brunabangsi mætir á svæðið
  • Kl. 14:00 Rauði Kross Íslands veitir skyndihjálparmanneskjum ársins verðlaun.
  • Kl. 14:00 Veitt verða verðlaun í eldvarnargetraun Landssambands slökkviliðs og sjúkraflutningamanna.



Frítt kandífloss á staðnum fyrir börnin!

Hlökkum til að sjá ykkur á Glerártorgi