Þjónusta á Glerártorgi
Hjólastólar fyrir viðskiptavini
Hægt er að fá hjólastóla að láni endurgjaldslaust á meðan verslað er á Glerártorgi. Hjólastólarnir eru staðsettir á húsvarðargangi, hliðin á Ellingsen. Sérstök bílastæði eru fyrir hreyfihamlaða.
Barnakerrur fyrir viðskiptavini
Hægt er að fá barnakerrur að láni endurgjaldslaust á meðan verslað er á Glerártorgi, bæði einfaldar kerrur og systkinakerru. Hjólastólarnir eru staðsettir á húsvarðargangi, hliðin á Ellingsen.
Skiptiaðstaða
Á salernum Glerártorgs eru skiptiborðsaðstaða fyrir foreldra til að skipta á börnum.
Innpökkunarborð
Á Glerártorgi er innpökkunaraðstaða þar sem þú getur pakkað inn þínum gjöfum.
Innpökkunarborðið er staðsett við Apótekarann.
Leiksvæði á göngugötunni
Á Glerártorgi geta foreldrar stoppað og hvílt sig á meðan börnin fá smá útrás á sérhönnuðum leiksvæðum sem henta börnum á öllum aldri.
Tapað og fundið
Húsumsjón heldur utan um muni sem finnast á Glerártorgi. Óskilamunir eru geymdir í fjórar vikur og eftir það farga húsverðirnir þeim eða koma í endurvinnslu.
Strætóleiðir að Glerártorgi
Auðvelt er að ferðast með strætó til og frá Glerártorgi með strætisvagnaleiðum.
Flestar leiðir hjá Strætisvögnum Akureyrar stoppa við Glerártorg.
Hleðslustöðvar fyrir rafbíla
Settu bílinn þinn í hleðslu og komdu inn í hlýjuna og verslaðu á meðan hann er að hlaðast.
Hopp leiga
Rafmagnshlaupahjól frá Hopp eru staðsett við suðurinngang og hvetjum við viðskiptavini til þessa að leggja rafhlaupahjólum sínum þar.
Reiðhjólastandar
Leggja skal hljólum utandyra þannig að þau hindri ekki för annarra vegfarenda. Standar til að læsa reiðhjólum eru til staðar við alla innganga á Glerártorgi.
Bílastæði
Frítt að leggja. Sérstök bílastæði fyrir hreyfihamlaða.
Hjólastólar fyrir viðskiptavini
Hægt er að fá hjólastóla að láni endurgjaldslaust á meðan verslað er á Glerártorgi,
Hjólastólarnir eru staðsettar á húsvarðargangi, á milli Imperial og Rexin til móts við salerni. Kvitta þarf fyrir láninu og skila svo stólnum þangað aftur eftir notkun.