FRÉTTIR & TILKYNNINGAR
Nýtt á Glerártorgi
Þrír nýir staðir hafa opnað á Glerártorgi
Tveir nýir staðir hafa opnað í Iðunn Mathöll, The Codfather og Smash Amigos, þar með eru staðirnir orðnir fimm. Í hinum enda hússins opnaði nýtt kaffihús, Coffee Corner, á milli Apótekarans og Ellingsen.
The Codfather sérhæfir sig í fiskréttum á borð við fisk og franskar, fisk- og humartacos og humarlokur. Staðurinn byrjaði sem matarvagn á Selfossi árið 2025 og hefur fengið mjög góðar viðtökur.
Smash Amigos opnaði í Iðunn Mathöll í september. Þar eru smashborgarar í aðalhlutverki en einnig er boðið upp á franskt tacos og hafa viðtökurnar gengið vonum framar
Í hinum enda hússins hefur kaffihúsið Coffee Corner opnað, en þar er boðið upp á fjölbreytta kaffidrykki, kökur og samlokur.
Nánar er fjallað um nýju staðina og fólkið sem stendur að rekstrinum í grein sem birtist á akureyri.net – Safaríkar nýjungar á Glerártorgi

Á myndinni eru Leví Ellertsen, rekstrarstjóri The Codfather fyrir norðan, Hlynur Friðfinnsson framkvæmdastjóri The Codfather og Andri Björn Jónsson, yfirkokkur fyrirtækisins.