FRÉTTIR & TILKYNNINGAR
Iðunn Mathöll hefur opnað!
21. desember 2024
Iðunn Mathöll hefur opnað á Glerártorgi
Fjölbreytt flóra veitingastaða
Sex veitingastaðir eru í mathöllinni. Mathöllin mun opna klukkan 11:30 og gengið verður út frá því að hafa opið til klukkan um það bil níu eða tíu á kvöldin. Veitingastaðirnir sex eru eftirfarandi:
- Lacuisine - franskt bistro
- Oshi - sushi
- Retro chicken, þar sem djúpsteiktur kjúklingur er á boðstólum
- Fuego taqueria - mexíkanskur veitingastaður
- Strýtan - kaffihús og kokteilabar með skandinavísku ívafi
- Pizza Popolare - sem líkt og nafnið gefur til kynna er pizzastaður
Innilegar hamingjuóskir með stórglæsilega mathöll!
.