Imperial með puttann á tískunni í 15 ár

„Að hjálpa fólki við að finna góðar gallabuxur eða aðra flík sem það er ánægt með, það er mómentið s…
„Að hjálpa fólki við að finna góðar gallabuxur eða aðra flík sem það er ánægt með, það er mómentið sem gefur mér allra mest í þessum rekstri,“ segir Dóri eigandi Imperial.

Imperial hefur verið ein vinsælasta tískuvöruverslun Akureyrar um árabil.Verslunin fagnar 15 ára afmæli um þessar mundir.

„Föt eru svolítið eins og matur, þau eru manninum lífsnauðsynleg og geta eins og maturinn haft mikil áhrif á líðan fólks. Fyrir mér hefur þetta alltaf snúist um það að gleðja viðskiptavininn og gera það vel. Þetta starf er ekki vinna í mínum huga heldur hrein ástríða og áhugamál. Það veitir mér mikla gleði ef ég get látið viðskiptavin labba ánægðan út úr búðinni. Að hjálpa fólki við að finna góðar gallabuxur eða aðra flík sem það er ánægt með, það er mómentið sem gefur mér allra mest í þessum rekstri,“ segir Halldór Magnússon, eigandi Imperial.

 

Varð bestur í kjólum

Halldór, sem gengur iðulega undir nafninu Dóri, hefur lifað og hrærst í tískubransanum í rúmlega 25 ár en áður en hann opnaði Imperial starfaði hann hjá NTC veldinu í Reykjavík og hjá Gallerí Akureyri. Undir niðri kraumaði þó draumur um eigin verslun og sá draumur varð að veruleika fyrir 15 árum. Þá var nýbúið að byggja við Glerártorg og Dóri greip tækifærið og var fyrstur til að tryggja sér verslunarpláss í nýrri álmu. „Mörgum fannst þetta alveg galin hugmynd, að opna 200 fm tískuvöruverslun á Akureyri, sem var mjög stórt á þeim tíma,“ rifjar Dóri upp. Bæði Levis og Benetton voru þá með verslanir á Akureyri og eigendur Gallerí voru með einar fimm tískuvöruverslanir í bænum svo Dóri segist hafa þurft að finna sína sérstöðu. „Að vera kaupmaður gengur út á það að vera sniðugur og útsjónasamur. Ég fór því strax að hugsa hvar væri gat á markaðinum. Á Akureyri á þessum tíma var varla hægt að kaupa kjól nema í kringum jólin svo ég ákvað að verða bestur í kjólum. Ég tel að þetta viðhorf hafi verið mjög klókt og ég hef haft það að leiðarljósi í gegnum minn rekstur, þ.e.a.s. að verða góður á þeim sviðum sem aðrir hafa ekki verið að sinna.“

Viðskiptahópur Imperial er breiður þó verslunin hafi það orð á sér að vera meira fyrir yngri kynslóðina.

 

Breytt úrval af gallabuxum

Á þeim 15 árum sem Imperial hefur verið á Glerártorgi hafa orðið miklar breytingar í verslunarmiðstöðinni, margar verslanir hafa horfið á braut og aðrar komið í staðinn. Stærsta breytingin er líklega tilkoma stóru tískuvörukeðjanna Lindex og H&M. Að sögn Dóra spáðu sumir því að hans verslun myndi ekki lifa þá samkeppni af. „Ég hef ekki litið þannig á málið, ég hef fagnað komu þessara verslana því þær hafa styrkt verslunarmiðstöðina í heild sinni. Takmarkið mitt er alltaf að finna hvar samkeppnisaðilinn er sterkur og hvar hann er veikur og finna glufuna og nýta hana,“ segir Dóri og bætir við að líklega sé sveigjanleiki hans sterkasta hlið samanborið við stóru verslunarkeðjurnar, hann geti breytt hratt um stefnu ef á þarf að halda. „Ef gulir kjólar komast t.d. allt í einu óvænt í tísku þá get ég verið búinn að fylla mína verslun af gulum kjólum á innan við þremur dögum.“ Hann heldur áfram; „Imperial er mjög sterk í kjólum, djammfatnaði og tækifærisfatnaði almennt. Fólk kemur til mín þegar þeim vantar dress á árshátíðina, kjól fyrir útskriftina eða eitthvað flott fyrir ball í Sjallanum. Við erum líka ofsalega sterk í gallabuxum og með gríðarlega gott úrval þar, líklega eitt það besta á landinu.“

 

Stórar breskar verslunarkeðjur innblásturinn

Imperial hefur stækkað þrisvar sinnum á þessum 15 árum.  Áherslurnar hafa þó ekkert breyst því Dóri hefur frá fyrsta degi reynt að bjóða upp á breytt vöruúrval sem höfðar til sem flestra. „Ég er alltaf að þróa búðina, alltaf að ná mér í innblástur, en fyrirmyndirnar af minni verlsun hafa alltaf verið stórar breskar tískukeðjur á borð við Topshop, New Look og River Island. Ég hef aldrei tekið neina stóra stefnubreytingu og þó verslunin hafi orð á sér að vera meira fyrir ungt fólk þá er viðskiptavinahópurinn minn mjög breiður. Ég er t.d. með buxur í versluninni sem konur alveg yfir nírætt eru mikið að kaupa.“

 

Tækifæri til vaxtar

Aðspurður um framhaldið þá er ljóst að Dóri er hvergi nærri hættur í tískubransanum. Hann segist gjarnan vilja sjá Imperial halda áfram að blómstra á Glerártorgi enda séu þar tækifæri til vaxtar. „Mig langar til þess að stækka skart- og fylgihlutadeildina um 500%. Þá vil ég bjóða upp á enn meiri breidd í gallabuxnadeildinni með því að bæta við nýjum merkjum. Eins sé ég fyrir mér að styrkja herradeildina sem á mikið inni. Þá hef ég undanfarið svo til eingöngu einbeitt mér að versluninni á Glerártorgi en næsta mál á dagskrá er að styrkja netverslunina“,“ segir Dóri þakklátur fyrir árin 15 á Glerártorgi.