Sunnudaginn 15. febrúar næst komandi gefst öllum tækifæri til að kynna sér störf og skoða búnað viðbragðsaðila á Akureyri og nágrennis á Glerártorgi milli kl. 12:00 og 15:00
Dagskráin er:
Kl. 12:00 Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir á bílastæðinu fyrir framan Nettó og verður með gest um borð.
Kl. 12:00 Björnis brunabangsi mætir á svæðið
Kl. 14:00 Rauði Kross Íslands veitir skyndihjálparmanneskjum ársins verðlaun.
Kl. 14:00 Veitt verða verðlaun í eldvarnargetraun Landssambands slökkviliðs og sjúkraflutningamanna.
Frítt kandífloss á staðnum fyrir börnin!
Hlökkum til að sjá ykkur á Glerártorgi