Árleg jólapakkasöfnun Glerártorgs er byrjuð

Jólaaðstoð 2020
Jólaaðstoð 2020

Árleg jólapakkasöfnun Glerártorgs er göfugt verkefni sem við erum stolt að fá að taka þátt í og eru gestir Glerártorgs hvattir til að kaupa eina aukagjöf og setja við jólatré Glerártorg.
Gott er að merkja pakkann kyni og aldri barns.


Söfnunin er í samstarfi við Jólaaðstoð, sem er samstarf Rauða krossins við Eyjafjörð, Hjálpræðishersins á Akureyri,
Mæðrastyksnefndar Akureyrar og Hjálparstarfs kirkjunnar.

þessi samtök taka enn á ný höndum saman við að aðstoða þá sem minna hafa á milli handana og þurfa aðstoð,ekki síst fyrir jólin.

Eins og undanfarin ár þá fer söfnunin fram við stóra jólatréð á "Torginu" þeir sem vilja leggja söfnuninni lið eru beðnir að vera tímanlega á ferðinni en síðasti dagur söfnunarinnar í ár er 6 desember.