Dagur sjúkrahússins

Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) ásamt starfsfólki sjúkrahússins standa fyrir hátíð á Glerártorgi laugardaginn 6. desember kl. 13-15.

Starfsfólk Sak býður upp á mælingu á blóðþrýstingi, súrefnismettun og púlsi. Félagsmenn í Hollvinasamtökunum kynna starfsemi sína og skrá nýja félaga. Smáfólkinu býðst að koma með bangsa eða dúkkur í læknisskoðun.

Mætum og gerumst Hollvinir!