Spennandi sumarstarf

Eik fasteignafélag leitar að öflugum og sjálfstæðum einstaklingi í starf umsjónarmanns Glerártorgs.

Við leitum að manneskju sem er sjálfstæð í vinnubrögðum, lausnamiðuð og tilbúin að sjá til þess að húsið og lóðin séu í toppstandi fyrir viðskiptavini og gesti. Um er að ræða sumarafleysingu frá byrjun júní fram í miðjan ágúst, með möguleika á áframhaldandi starfi.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn umsjón og daglegt eftirlit með Glerártorgi.
  • Glerártorg og umhverfi þess sé ávallt snyrtilegt og að upplifun viðskiptavina sé jákvæð.
  • Minniháttar viðhald, viðgerðir og önnur praktísk verkefni sem koma upp í daglegum rekstri.
  • Önnur tilfallandi verkefni sem tryggja örugga og góða starfsemi hússins.

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Gott verkvit og reynsla af praktískum störfum sem nýtast í umsjón fasteigna.
  • Reynsla af viðhaldi húsnæðis er kostur.
  • Rík þjónustulund, góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna sjálfstætt.
  • Góð almenn íslensku- og enskukunnátta.
  • Almenn tölvukunnátta.

Umsóknarfrestur: 17. maí 2026

 

Allar nánari upplýsingar:

Kristín Erla Pétursdóttir, mannauðsstjóri

kristin@eik.is