Gina Tricot opnar glæsilega 325 fm. verslun á Glerártorgi 25. nóvember

Albert Þór Magnússon og Lóa D. Kristjánsdóttir
Albert Þór Magnússon og Lóa D. Kristjánsdóttir

Gina Tricot opnar glæsilega 325 fm. verslun á Glerártorgi 25. nóvember - 2 verslanir opna samtímis!

Gina Tricot opnar glæsilega 325 fm. verslun á Glerártorgi á Akureyri þann 25. nóvember kl. 12:00. Verslunin opnar einungis tveimur dögum eftir opnun fyrstu verslunarinnar í Kringlunni sem tilkynnt var um í sl. viku. Verslunin sem mun bjóða konum upp á tískufatnað og fylgihluti sem og fatnað á stúlkur í stærðum 134-164 verður staðsett við rétt hjá Lindex í aðalgöngugötu Glerártorgs. Gera má ráð fyrir að 6-8 ný störf muni skapast við nýju verslunina á Akureyri. Gina Tricot er ein af stærstu tískufatakeðjum Svíþjóðar með um 150 verslanir í 4 löndum en höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Borås, hjarta sænsks textíliðnaðar.


Opnun í aðalverslunarmiðstöð Akureyrar á Glerártorgi verður laugardaginn 25. nóvember kl. 12:00 en þegar hefur verið kynnt að fyrsta verslun Gina Tricot mun opna í Kringlunni, við aðalrúllustiga þessarar vinsælustu verslunarmiðstöðvar landsins, en því er fylgt beint eftir með opnun i höfuðstað norðursins.

„Þegar við ræddum hvar Gina Tricot ætti heima vorum við staðföst í að finna henni stað hér á Akureyri þar sem við höfum verið núna í næstum áratug. Þegar tækifæri bauðst til að opna hér á Glerártorgi við hliðina á Lindex vissum við að þetta væri algjörlega málið! Við erum virkilega spennt að opna fyrir frábæra tískuvöru Gina Tricot hér fyrir norðan”– segir Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, umboðsaðili Gina Tricot á Íslandi.
Með opnuninni á Glerártorgi verða verslanir þá þrjár talsins fyrir árslok, 2 verslanir ásamt netverslun www.ginatricot.is sem opnaði í mars á þessu ári.

Líkt og í Kringlunni verður aðilum gert mögulegt að taka þátt í veislunni frá upphafi en opið verður fyrir skráningar í Gina Tricot klúbbinn fyrir framan verslunarfrontinn þar sem möguleiki er á að snúa lukkuhjóli. Enginn fer heim tómhentur því gjafapoki fylgir en að auki er þátttakendum gert kleift að taka þátt í aðalveislunni og mæta í opnunina þann 25. nóvember kl. 12:00 sem fer fram undir dynjandi tónlist DJ Dóru Júlíu.

 

 

„Það er okkur sönn ánægja að bjóða Gina Tricot velkomna hingað til okkar í aðalverslunarmiðstöð Norðurlands, Glerártorg. Við höfum lagt mikið kapp á að greikka leið þeirra hingað og erum við ótrúlega spennt að geta bætt Gina Tricot við það frábæra vöruúrval sem finnst hér á torginu,”-segir Sturla Gunnar Eðvarðsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Eik fasteignafélagi.

Útlit Gina Tricot verslunarinnar fylgir nýrri innréttingahönnun fyrirtækisins sem leit fyrst dagsins ljós á Drottninggatan í Stokkhólmi á síðasta ári. Hönnunin er „ofurnútímaleg“ með vísan í skandinavískan uppruna vörumerkisins þar sem ljósir litir og mjúkir tónar og viðaráferð kallast á við skjái og innréttingar sem veita innblástur og draga fram nýjustu línur Gina Tricot.
Gina Tricot á Íslandi er rekin í gegnum umboðssamning við Lóu D. Kristjánsdóttur og Albert Þór Magnússon en þess má geta að Ísland er fyrsta landið í alþjóðlegu samhengi þar sem slíku umboðsfyrirkomulagi er fyrir að fara.

 

 

„Við erum stöðugt að leita leiða til að bæta okkur og vaxa með sjálfbærum hætti. Jákvæð uppbygging Gina Tricot hefur leitt okkur til að bæta við Íslandi. Saman með okkar umboðsaðilum erum við virkilega spennt að geta boðið okkar frábæru verslunarupplifun á Akureyri“, segir Ted Boman, forstjóri Gina Tricot AB

Gina Tricot leggur mikla áherslu á samfélagslega ábyrgð, áhrif sín á umhverfið og að vera virkur þátttakandi í að skapa sjálfbærari tískuiðnað, t.d. með því að endurhanna eldri flíkur s.s. í samstarfi við hönnuði úr hönnunarháskólanum í Borås auk þess að kynna línur sem byggja á að endurvinna flíkur og efni og þannig byggja undir hringrásariðnað. Gina Tricot er einnig samstarfsaðili samtaka eins og UN Women, UNICEF og Alheimssjóð fyrir náttúruna (World Wildlife fund for nature) ásamt því að framleiða vörur undir vottunum svansmerkisins (e. The Nordic Swan Ecolabel) og GOTS (e. Global Organic Textile Standard) sem tryggir notkun bómullar framleidd með sjálfbærari hætti. Síðan 2011 hefur Gina Tricot verið aðili að Amfori, áður BSCI, sem hefur að markmiði að bæta félagslegar aðstæður og umhverfismál í aðfangakeðjunni.

 


Verslun Gina Tricot á Glerártorgi opnar dyr sínar 25. nóvember kl. 12:00 á aðalgöngugötu Glerártorgs.
Þú getur skráð þig í klúbbinn á www.ginatricot.is og við inngang nýrrar verslunar á Glerártorgi.
Finndu okkur á FB, Instagram og TikTok, @ginatricoticeland

Nokkrar lykilstaðreyndir um Gina Tricot:
• Gina Tricot býður upp á kventískufatnað, fylgihluti og heimilisvörur
• Gina Tricot starfrækir um 150 verslanir í 4 löndum og á netinu í öllum Evrópulöndum
• Verslanir Gina Tricot eru í Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku og Þýskalandi og nú á Íslandi
• Hjá fyrirtækinu starfa um 1.500 manns
• Aðalskrifstofur Gina Tricot eru í Borås i Svíþjóð
• Frekari upplýsingar má finna á www.ginatricot.com/companyinformation/about-ginatricot