Það verður góð fjölskylduskemmtun á Glerártorgi laugardaginn 1. ágúst.
Frá kl. 13 - 15 verður frítt kandýfloss og kl 15:00 mæta Þyrnirós og Hrói höttur úr Leikhópnum Lottu í heimsókn. Þau verða með skemmtilegt 20 mínútna atriði úr ævintýraskógi Lottu. Atriðið er brot af því besta í gegnum árin og stútfullt af sprelli, söng og fjöri fyrir allan aldur!
Góða skemmtun um helgina!
Glerártorg - fyrir góðar stundir