Mathöllin á Glerártorgi

HAF STUDIO sér um hönnunina á mathöllinni á Glerártorgi.
HAF STUDIO sér um hönnunina á mathöllinni á Glerártorgi.

Fyrsta mathöllin á Akureyri opnar í byrjun sumars. Stefnan er sett á að opna samtals sex veitingastaði í rýminu og eru framkvæmdir nú þegar hafnar.

 

Sögusagnir um opnun mathallar á Akureyri hafa verið tíðar frá því að fyrsta mathöllin opnaði í Reykjavík og hefur nú þegar mikill áhugi myndast á svæðinu fyrir tilvonandi opnun. Hugsanlegir rekstraraðilar sem luma á girnilegum hugmyndum eru hvattir til þess að setja sig í samband við rekstrarstjóra mathallarinnar, Kristján Ólaf Sigríðarson, kristjan@darko.is

 

Mathöllin sjálf verður staðsett í norðaustur hluta Glerártorgs þar sem Vodafone og Kaffi Torg var áður og verður opin umfram almennan opnunartíma Glerártorgs og þurfa svangir og þyrstir gestir mathallarinnar því  ekki að hverfa frá svæðinu þegar að verslanir loka.

 

Kristján Ólafur Sigríðarson, rekstrarstjóri mathallarinnar: „Það er löngu kominn tími á að opna mathöll á Akureyri og við stukkum á tækifærið þegar það gafst. Um leið og við fórum af stað með verkefnið spruttu upp hinar og þessar hugmyndir um veitingastaði í mathöllinni og við hlökkum til að sjá allar þær nýju hugmyndir sem koma til með að berast okkur nú þegar við erum formlega búin að boða komu okkar. Ég hvet alla áhugasama um að hafa samband við okkur.“

 

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband í gegnum netfangið kristjan@darko.is

Umsóknarfrestur er til og með 18. febrúar 2024