Blóðbankinn á Akureyri mun í vor taka í notkun nýjan blóðsöfnunarbíl sem mun gjörbreyta þjónustunni á Norðurlandi. Með bílnum verður hægt að fara í reglulegar ferðir frá Akureyri til nágrannasveitarfélaga og hitta blóðgjafa í þeirra heimabyggð. Efnt verður til nafnasamkeppni, sem hefst á morgun, þar sem almenningi gefst kostur á að leggja til nafn á bílinn.
„Þetta eykur þjónustustigið verulega,“ segir Hanna Vigdís Jóhannesdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Blóðbankanum á Akureyri um nýja bílinn. „Í dag er fólk oft að keyra klukkutíma frá Húsavík eða Sauðárkróki til að gefa blóð hér á Akureyri en með bílnum getum við farið meira til þeirra.“
Bíll sérhannaður fyrir blóðsöfnun á Norðurlandi
Hingað til hefur stór blóðsöfnunarbíll komið norður tvisvar á ári og farið á staði á borð við Húsavík, Dalvík og Sauðárkrók. Nú fær Blóðbankinn hins vegar glænýjan minni bíl sem verður staðsettur á Akureyri. Bíllinn verður búinn tveimur blóðgjafastólum og sérstaklega hannaður fyrir starfsemina, meðal annars með það að markmiði að hægt sé að sinna ferðum yfir vetrartímann. Reiknað er með að bíllinn komi til Akureyrar í apríl. Allt starfsfólk Blóðbankans á Akureyri mun geta ekið honum og ferðaáætlun verður kynnt þegar nær dregur. Ferðirnar verða líklega einu sinni í mánuði eða á tveggja mánaða fresti, eftir staðsetningum.
Leitað að nafni á bílinn
Í tengslum við komu bílsins verður efnt til nafnasamkeppni, þar sem almenningi gefst kostur á að leggja til nafn á bílinn. Nafnið á að endurspegla Norðurland í heild, þar sem bíllinn mun þjóna öllum fjórðungnum. Samkeppnin hefst á morgun, 11. febrúar og stendur í tvær vikur og verða góð verðlaun í boði.
„Þetta er líka leið til að kynna bílinn og starfsemina,“ segir Hanna Vigdís sem er þess fullviss að þegar fólk sér bílinn kviknar oft áhugi og fleiri koma í blóðgjöf. „Þá getum við líka keyrt innanbæjar ogheimsótt fyrirtæki og stofnanir þar sem starfsmenn vilja gefa blóð. Fyrirtækjum er alltaf velkomið að setja sig í samband við okkur.“
Lesa nánar frétt sem birtist á Akureyri.net
https://www.akureyri.net/is/frettir/attu-verdlaunanafn-a-blodsofnunarbilinn