Ný frístundaverslun opnar á Glerártorgi

Krakkasport ehf. mun opna verslun á Glerártorgi í byrjun nóvember.

Krakkasport byrjaði sem netverslun fyrir rúmu ári en síðan í apríl hefur lítil verslun verið rekin að Njarðarnesi 6 samhliða vefversluninni.

Eins og nafnið gefur til kynna var aðaláherslan í upphafi vörur fyrir börn en vöruúrval hefur vaxið og orðið fjölbreyttara eftir því sem á líður. Nú sérhæfir verslunin sig í vörum sem viðkoma frístundum fyrir alla aldurshópa.

Mikil eftirvænting er fyrir opnun verslunarinnar sem einnig mun fá nýtt nafn með skírskotun til aukins vöruúrvals.

Verslunin mun fá nafnið Hobbý & sport þegar hún opnar á Glerártorgi.