Við bjóðum öllum krökkum að koma og syngja í verslunum og hjá þjónustuaðilum í húsinu og taka þátt í fjörinu þar sem gleðin verður allsráðandi á Öskudaginn á Glerártorgi.
Við bjóðum öllum krökkum að koma og syngja í verslunum og hjá þjónustuaðilum í húsinu og taka þátt í fjörinu þar sem gleðin verður allsráðandi á Öskudaginn á Glerártorg.
Húsið opnar klukkan 10:00 og munu verslanir og þjónustuaðilar taka vel á móti börnunum. Myndakassi frá Partýland verður einnig á svæðinu.
Klukkan 12:00 mun Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri stíga á svið og taka nokkur lög úr söngleiknum Ronja Ræningjadóttir sem er nú í sýningu. Að því loknu bjóða þau börnum að stilla sér upp í röð og slá köttinn úr tunnunni (staðsetning milli Kids Coolshop og Heimilistæki).
Verið hjartanlega velkomin í öskudagsgleðina á Glerártorgi!