Öskudagurinn á Glerártorgi

Við bjóðum öllum að koma og syngja í verslunum og hjá þjónustuaðilum á Glerártorgi og taka þátt í fjörinu þar sem gleðin verður allsráðandi á öskudaginn.

Húsið opnar klukkan 10:00 og munu verslanir og þjónustuaðilar taka vel á móti börnunum.

Klukkan 12:00 mun Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri stíga á svið og taka nokkur lög úr söngleiknum Ronja Ræningjadóttir sem er nú í sýningu í Gryfjunni, VMA. Að því loknu bjóða þau börnum að stilla sér upp í röð og slá köttinn úr tunnunni (staðsetning milli Kids Coolshop og Heimilistæki).

Verið hjartanlega velkomin í öskudagsgleðina á Glerártorgi!

Glerártorg - Fyrir góðar stundir.