Ert þú með lausa skrúfu?
Lausa Skrúfan er vitundarvakning á vegum Grófarinnar Geðræktar á Akureyri. Markmið hennar er að auka meðvitund fólks um að gæta vel að andlegri heilsu sinni, efla forvarnir í geðheilbriðismálum og minnka fordóma gagnvart andlegum veikindum. Enn fremur, að hvetja fólk til þess að leita sér aðstoðar þegar þess er þörf og veita upplýsingar um hvar stuðning er að finna í samfélaginu okkar. Febrúar er mánuður Lausu skrúfunnar en sá mánuður er oft á tíðum kaldur og dimmur og því verður brýnt að huga vel að eigin geðheilsu.
Lausa Skrúfan er einnig fjáröflun fyrir félagasamtökin Grófin Geðrækt sem rekur opna og gjaldfrjálsa geðrækt á Akureyri. Hægt er að leggja málstaðnum lið með því að styrkja félagið með frjálsum framlögum eða með því að gerast bakjarl --> www.lausaskrufan.is/styrkja
Hvað er lausa skrúfan?
Þátttakendur úr Grófinni Geðrækt bjóða öll velkomin á Glerártorg til að kynnast starfseminni, ræða um geðheilbrigðismál og hvar er hægt að leita sér stuðnings. Áhugasömum er bent á að skoða heimasíðu verkefnisins www.lausaskrufan.is.
Hvað er Grófin Geðrækt? Grófin geðrækt er gjaldfrjálst úrræði fyrir einstaklinga 18 ára og eldri á öllum stigum bataferilsins. Ekki þarf tilvísun frá fagaðila til þess að nýta sér úrræðið. Staðurinn er fyrir alla sem vilja bæta heilsuna með geðrækt og batavinnu gegnum hópastarf á jafningjagrundvelli.
Frekari upplýsingar veitir Inga Bryndís verkefnastjóri í síma 849-4017 og á inga@grofinak.is