Vogue fyrir heimilið opnar nýja og stærri verslun á Glerártorgi

Kristín Þöll Þórsdóttir, verslunarstjóri Vogue fyrir heimilið á Akureyri
Kristín Þöll Þórsdóttir, verslunarstjóri Vogue fyrir heimilið á Akureyri

 

Vogue fyrir heimilið opnar nýja og stærri verslun fimmtudaginn 12. október kl 12:00 á Glerártorgi

 

„Við hlökkum ótrúlega til að bjóða ykkur velkomin í nýju og glæsilegu verslunina okkar á Glerártorgi, og í tilefni opnunarinnar verðum við með fullt af flottum tilboðum. Til að mynda verða stillanleg rafmagnsrúm frá Ergomotion á 20% afslætti og fylgir nótt fyrir tvo á hótel Berjaya Reykjavik Natura með hverju seldu rúmi. Einnig verður 20% afsláttur af Wizz hægindastólunum sem Íslendingar elska, 20% afsláttur af allri vefnaðarvöru og fleiri frábær tilboð." segir Kristín Þöll, verslunarstjóri Vogue fyrir heimilið á Akureyri. 

 

Vogue fyrir heimilið hefur þjónustað Íslendinga í yfir 70 ár og hefur alla tíð lagt megináherslu á fyrsta flokks þjónustu, vandað vöruúrval og sanngjörn verð.

Við bjóðum Vogue hjartanlega velkomin á Glerártorg!